Suðurhlíð 35    IS-105 Reykjavík    Sími 552 2070    Fax 552 2195   
ÞJÓNUSTUSVÆÐI
MAINTAIN PRO
GÆÐAVÍSIR
QCC
Um fyrirtækið
Þjónusta
"Í fókus" og aðrar greinar
Upplýsingatækni
Upplýsingaöflun
Geislavarnir
Lokaverkefni og ritgerðir
Fyrirlestrar
Gæðamælingar
Saga myndgreiningar
Geislakeilan
Reikna bandvídd
Arnartíðindi
Á döfinni
Tenglar
Starfsfólk / Contacts
Myndir
SUPPORT
ENGLISH
LEITARVÉL
ECR 2012 - Prentvæn útgáfa
Evrópuráðstefna myndgreiningarfólks, European Congress of Radiology (ECR), er haldin í Vínarborg í mars ár hvert. Íslendingar hafa tekið virkan þátt í ráðstefnum undanfarinna ára og svo er einnig þetta árið. Listi yfir þá sem Arnartíðindi hafa vitneskju um að séu á leið á ECR 2012 er aðgengilegur hér á vefsíðunni.


Meira en 20.000 gestir frá nærri 100 löndum
Ráðstefnan stendur yfir frá 1. - 5. mars 2012 og er haldin í Austria Center í Vínarborg.
Þetta er lang stærsti viðburður fyrir myndgreiningarfólk í Evrópu, með yfir 20.000 þátttakendum. Með hverju árinu fjölgar fólki frá löndum utan Evrópu og árið 2011 komu ráðstefnugestir frá 96 þjóðlöndum. Til að átta sig á umfangi ráðstefnunnar má nefna að á ECR í fyrra voru 270 fyrirlestrar á dagskrá, hægt var að kynna sér 3000 rafrænar sýningar og 870 rannsóknaskýrslur, auk þess sem 307 sýnendur voru á tæknisýningu sem tók yfir 26,000 m² 

Góður undirbúningur er mikilvægur
Það er um að gera að nýta sér Interactive Programme Planner (IPP) til að skipuleggja ferðina sína á ECR. Þar er þægilegt að skoða dagskrána og leita í henni, líka að leita að áhugaverðum rafrænum sýningum (“posterum”), lesa útdrætti (abstracts) og ekki síst að safna viðburðum í körfuna sína og búa sér til sína eigin dagskrá.
European Society of Radiology (ESR), sem heldur ECR ráðstefnuna, hefur alltaf lagt mikið upp úr að nýta nýjustu tækni og IPP er að sjálfsögðu aðlagaður snjallsímum, spjaldtölvum og þess háttar græjum, þannig að ráðstefnugestir geta alltaf haft í hendi sér allt sem þeim finnst mikilvægt að vita. Slóðin er ipp.myESR.org.

Þeir sem vilja fletta dagskránni á hefðbundnari hátt hafa aðgang að henni á pdf formi og að sjálfsögðu eru allar upplýsingar aðgengilegar á vefsíðu ráðstefnunnar

Skemmtileg umgjörð
Ég er þeirrar skoðunar að það sé alltaf ástæða til að sækja opnunarathöfn á stórum ráðstefnum. Þar er yfirleitt lagt upp úr því að ná vel til gestanna, skapa skemmtilega umgjörð og koma á framfæri ýmsu sem máli skiptir. Opnunar- eða heiðursfyrirlestrar eru líka nær undantekningarlaust vandaðir og áhugaverðir.
Opnunarhátið ECR 2012 er á dagskrá fimmtudaginn 1. mars, kl. 17:45, í sal A, sem auðvelt er að finna með því að nota upplýsingar um húsaskipan á IPP.

Eitt er alltaf skemmtilegt á ECR og það er að skoða myndirnar úr árlegri ljósmyndasamkeppni ráðstefnugesta, sem eru til sýnis í ráðstefnuhöllinni. Því miður er frestur til þátttöku runninn út þetta árið en hver veit nema einhver af Íslendingunum sem eru á leið til Vínarborgar hafi sent inn mynd! 

Metnaðarfull dagskrá
Dagskrá ráðstefnunnar er metnaðarfull og efnismikil. Þetta árið er búið að fjölga fyrirlestrum og í fyrsta sinn hefst ráðstefnan með fullum þrýstingi strax að morgni fyrsta dags. Þeir sem bera hitann og þungann af uppbyggingu dagskrárinnar eru hinar svokölluðu Scientific Subcommittees en Maríanna Garðarsdóttir, röntgenlæknir á LSH, hefur einmitt starfað í einni slíkri undanfarin ár og skrifaði grein í Arnartíðindi þar um á síðasta ári. 

Gagnvirkni og önnur tölvutækni
Tölvutækni og gagnvirkni er nokkuð sem er mikið notað á ECR ráðstefnunum og í ár leikur gagnvirknin stórt hlutverk í enn fleiri fyrirlestrum og öðrum viðburðum, þannig að ráðstefnugestir geta tekið virkan þátt í fjölda atburða. Í dagskránni eru atburðir þar sem gagnvirkni er stór þáttur merktir með litlu tákni sem minnir á lyklaborð.
Gríðarlegt magn af fyrirlestrum og öðru efni er aðgengilegt rafrænt og með því að nota skráningarnúmerið sitt hafa þátttakendur áfram aðgang að þessu efni þegar heim er komið. 

Örfá dæmi úr yfirgripsmikilli dagskrá
Ótal fyrirlestrar, vinnustofur (workshops), o.s.fr. um myndgreiningu hinna ýmsu líkamshluta og sjúkdóma hjá fólki á öllum aldri er í boði á ECR. Til gamans ætla ég að nefna nokkra atburði sem vekja áhuga minn en tek fram að aðeins er um að ræða örfá atriði sem ég rakst á í frekar hraðri yfirferð um dagskrá ECR 2012.

Mikil áhersla er lögð á þá sem erfa skulu myndgreininguna og sem dæmi um það má nefna Rising Stars Programme, fyrir unglækna og nema, bæði læknanema og geislafræðinema.

Áhugaverð fyrirlestraröð tileinkuð geislafræðingum er á dagskrá föstudaginn 2. mars kl. 16, með yfirskriftinni “Assessing novel technology: applications, performances and quality issues” þar sem fjallað verður um ýmsar tækninýjungar og hvernig þær snúa við geislafræðingum sérstaklega.

Ýmislegt tengt myndvinnslu og -geymslu er til umfjöllunar á fimmtudag og föstudag undir dagskrárliðnum “Computer Applications” en þar er líka fleira til umræðu, t.d. notkun ábendingar- og úrlestrarforrita.

Á laugardeginum, 3. mars, er hægt að læra ýmislegt um myndgreiningu í slysatilvikum og kallast fyrirlestrarnir í heild Polytrauma in the golden hour. Í kynningu má sjá þær upplýsingar að þar sem fórnarlömb slysa séu yfirleitt ung að árum tapist fleiri æviár vegna slysa en hjarta- og æðasjúkdóma sem þó séu orsök flestra dauðsfalla í heiminum. Hröð og árangursrík meðhöndlun slasaðra sé því gríðarlega mikilvæg og byggist ekki síst á snöggum og vönduðum vinnubrögðum myndgreiningarfólks og hæfni þess í samskiptum og samvinnu.

Í framhaldi af þessu má minnast á umfjöllun um myndgreiningu á áverkum á kviðarhol þar sem áherslan er á “átök” milli ómskoðana og CT-rannsókna, “Abdominal emergencies: US resists CT!”. Þess má geta að þessi dagskrárliður er merktur þannig að í honum sé sérstök áhersla á gagnvirkni og þátttöku þeirra sem á hlýða.

Myndgreining hjartasjúkdóma á einnig sinn hlut í dagskrá laugardagsins, undir yfirskriftinni “Cardiac imaging: from diagnosis to prognosis

Eins og fyrr segir er lögð mikil áhersla á ungt myndgreiningarfólk á ECR og meðal annars er hægt að hlýða á fyrirlestur um gildi þess að byrja fyrr í læknanáminu að kenna nemendum um myndgreiningu, “Undergraduate teaching: the future of radiology”.

Það er oft erfiðleikum bundið að ná góðum myndum af gerfiliðum og sunnudaginn 4. mars gefst kostur á að hlusta á fyrirlestra um góðar aðferðir til þess, “Imaging hip joint replacement”.

Annar áhugaverður dagskrárliður á sunnudeginum er “Radiology on the road: working
when you are away from home” þar sem meðal annars er velt upp spurningum varðandi notkun spjaldtölva og fleiri handtækja í myndgreiningu.

Eitt af því sem vekur áhuga í dagskrá mánudagsins 5. mars eru fyrirlestrar og pallborðsumræður í samvinnu ESR og ICRP með yfirskriftinni “Upcoming challenges in radiation protection”.
Í ljósi umræðna sem spunnust í kjölfar tilkynningar frá norrænum geislavarnayfirvöldum varðandi geislaálag af CT rannsóknum er þessi umfjöllun enn áhugaverðari en ella. 

Tæknisýningin í stöðugri sókn
Tæknisýningin er svo kapítuli út af fyrir sig og síðustu árin hefur hún vaxið hratt bæði að stærð og gæðum. Tekin var ákvörðun um það hjá ESR að leggja meiri áherslu á þennan þátt og það hefur skilað sér í mjög áhugaverðri viðbót við ráðstefnuna. Þó flestir tækjaframleiðendur miði við að kynna nýjungar á RSNA í Chicago eru þeir einnig farnir að gera sér far um að vera með flottar kynningar og góðar upplýsingar á ECR og enginn ætti að láta tæknisýninguna framhjá sér fara.

Lífið utan vinnu
Svo má heldur ekki gleyma því að lífið er ekki bara vinna og til að halda starfsþrekinu er mikilvægt að slaka á öðru hverju. Ótalmargt skemmtilegt er hægt að gera í Vín sem er mikil menningarborg meðlanga og viðburðaríka sögu, að ógleymdri matarhefð sem býður upp á ýmislegt girnilegt. 

13.02.12 Edda Aradóttir edda@raforninn.is 


Fara til baka í "Í fókus" og aðrar greinar
VEFTRÉ VEFTRÉ HEIM HEIM HAFÐU SAMBAND HAFÐU SAMBAND TIL BAKA TIL BAKA UPP UPP