Raförninn hefur verið valið eitt af framúrskarandi fyrirtækjum á Íslandi. Creditinfo birti þann 9. febrúar, lista yfir 244 framúrskarandi fyrirtæki ársins 2011 og er Raförninn á þeim lista. Fyrirtækið stenst því styrkleikamat Creditinfo og er í hópi traustustu fyrirtækja landsins.
Í Hlutafélagaskrá eru um 32.000 fyrirtæki en 244 þeirra uppfylltu skilyrði Creditinfo til að fá viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki. Á þennan lista komast eingöngu þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum 2011.
Listinn sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati hjá Creditinfo. Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Horft er til stöðugleika í rekstri frekar en afkomu einstakra ára og eignir þurfa að vera meira en 80 milljónir á árunum 2008-2010 og eigið fé 20% eða meira. Einnig þurfa fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.
Sjá nánar á
vef Creditinfo.
Arnartíðindi þakka Eiríki K. Þorbjörnssyni, aðstoðarframkvæmdastjóra Rafarnarins, fyrir þessa frétt.
Unnið 13.02.12 Edda Aradóttir edda@raforninn.is